Hoppa yfir valmynd
16. maí 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Bætt og samræmd móttaka og menntun barna af erlendum uppruna

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri og Einar Þorsteinsson borgarstjóri undirrita samkomulag um MEMM í Miðstöð menntunar og skólaþjónustu - mynd

Mennta- og barnamálaráðherra, borgarstjóri og forstjóri nýrrar Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu undirrituðu í gær samkomulag um þróunarverkefnið Menntun Móttaka Menning (MEMM). Því er ætlað er að stuðla að inngildingu og virkri þátttöku barna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi.

Verkefnið var kynnt á opnu húsi hjá nýrri Miðstöð menntunar og skólaþjónustu í gær. Það er liður í heildarsýn ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum og aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu. Í krafti nýrrar stofnunar og víðtæks samstarfs er ætlunin að stórefla þjónustu og taka vel á móti og utan um viðkvæman hóp barna.

MEMM miðar að því að koma á samræmdu verklagi um móttöku og menntun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn á landsvísu í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og frístundastarfi. MEMM er jafnframt ætlað að þróa og tryggja öfluga ráðgjöf, námsgögn og verkfæri, sem og stuðning til lausnar flóknari aðstæðum. Nýta á þá þekkingu sem skapast hefur bæði hjá menntastofnunum og sveitarfélögum landsins og reynst hefur vel við móttöku barna af erlendum uppruna með samstarf og samhæfingu að leiðarljósi.

„MEMM er risastórt skref í að hrinda í framkvæmd aðgerðum ríkisstjórnarinnar í málefnum útlendinga og ná vel utan um hóp barna sem hefur orðið eftir. Við höfum víða aflað dýrmætrar þekkingar og reynslu og safnað upplýsingum um farsæld barna. Nú leggjumst við á eitt með nýrri stofnun og nýjum verkfærum í að efla og samþætta þjónustuna,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, en vinnan styðst við fyrirhuguð lög um inngildandi menntun og lög um námsgögn, nýtt Mælaborð um farsæld barna, nýtt og fjölbreyttara námsmat og nýjan nemendagrunn fyrir gagnadrifið menntakerfi.

Með samkomulaginu sameinast Miðja máls og læsis, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem hluti af MEMM á landsvísu. Miðja máls og læsis hefur á liðnum árum byggt upp markvissa þjónustu vegna barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í Reykjavíkurborg með góðum árangri.

„Öflugur málþroski er lykill að velgengni í lífinu og okkur þykir mikilvægt að sú þekking sem liggur hjá starfsfólki borgarinnar í Miðju máls og læsis nýtist börnum á landinu öllu. Þau hafa unnið brautryðjendastarf og það er afar jákvætt að ríki og sveitarfélög vinni saman að farsæld allra barna,“ segir Einar Þorsteinsson borgarstjóri.

Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, kynnir nýja stofnun

„Ég fagna því innilega að fá tækifæri til að byggja á því mikilvæga frumkvöðlastarfi sem unnið hefur verið að síðustu ár. Það er mikill fengur í slíkri meðgjöf og hjálpar okkur að bjóða þessa mikilvægu þjónustu á landsvísu,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og bætir við að starfsfólk miðstöðvarinnar sé fullt tilhlökkunar að takast á við þetta mikilvæga verkefni.

Stuðningur, ráðgjöf og efni tengt verkefninu verður gert aðgengilegt um allt land með áherslu á skólaskrifstofur sveitarfélaga, leik-, grunn- og framhaldsskóla, og frístundastarf þar sem börnin búa og stunda nám.

Í lok verkefnisins er stefnt að því að Miðstöð menntunar og skólaþjónustu geti boðið stuðning og þjónustu á þessu sviði um land allt. Lagt verður mat á fjölgun skóla sem tekið hafa þjónustuna í notkun, að starfsþróun kennara og framboð á námsefni og verkfærum vegna íslensku sem annars máls fyrir börn og kennara hafi aukist, og að stuðningsúrræði á landsvísu séu til staðar vegna barna í viðkvæmri stöðu (s.s. flóttabarna). Jafnframt er stefnt að kortlagningu gagna sem nýta má til að fylgjast með námsárangri og félagslegri virkni barnanna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum