Hoppa yfir valmynd
17. maí 2024 Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Matvælaráðuneytið, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Frekari stuðningsaðgerðir fyrir Grindavík kynntar

Ríkisstjórnin kynnti í dag tillögur um frekari stuðning við heimili og fyrirtæki í Grindavík. Tillögurnar felast í stuðningslánum með ríkisábyrgð til grindvískra fyrirtækja, viðspyrnustyrkjum, framhaldi launastuðnings og hráefnis- og afurðatryggingum. Þá verður sérstakur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur til áramóta.

Stuðningslán með ríkisábyrgð

Rekstraraðilum með starfsstöð í Grindavík verður gert kleift að taka lán hjá lánastofnunum með ábyrgð ríkisins að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Markmiðið er að hjálpa rekstrarhæfum fyrirtækjum í Grindavík að viðhalda starfsemi á óvissutímum.

Lán af þessu tagi eiga sér fordæmi í stuðningsaðgerðum til fyrirtækja í COVID-19 faraldrinum. Gert er ráð fyrir að fyrirtæki með starfsstöð í Grindavík eigi kost á láni og að fasteign sé ekki skilyrði.

Frumvarp um stuðningslán verður unnið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Stefnt er að því að lánveitingar hefjist í haust.

Viðspyrnustyrkir

Tímabundinn rekstrarstuðningur til fyrirtækja sem voru með rekstur í Grindavík í nóvember 2023 verður framlengdur og gildi til loka ársins. Að óbreyttu hefði úrræðið runnið út í lok júní. Stuðningnum er ætlað að gera fyrirtækjum kleift að laga starfsemi sína að breyttum aðstæðum og hefja starfsemi í Grindavík að nýju þegar aðstæður leyfa.

Gert er ráð fyrir að frumvarp um framlengingu viðspyrnustyrkja verði lagt fram á Alþingi í júní.

Framlenging launastuðnings

Stuðningur til greiðslu launa verður framlengdur til 31. ágúst nk. en úrræðið átti að renna út í lok júní. Með því að framlengja gildistímann um tvo mánuði gefst atvinnurekendum og launþegum frekara svigrúm þar sem búist er við að stuðningslán verði ekki afgreidd fyrr en í haust. Um 1.700 manns hafa fengið greitt úr úrræðinu, en mikill meirihluti þeirra starfar á almennum vinnumarkaði.

Gert er ráð fyrir að frumvarp um framlengingu launastuðnings verði lagt fram á Alþingi í júní. 

Afurðasjóður Grindavíkur verður til

Í matvælaráðuneytinu er unnið að gerð frumvarps með það að markmiði að koma á fót úrræði til að tryggja hráefni og afurðir fyrirtækja í Grindavík fyrir tjóni vegna náttúruvár. Málið er unnið í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðuneytið og Náttúruhamfaratryggingu Íslands.

Gert er ráð fyrir að frumvarp um tryggingu afurða í Grindavík verði lagt fram á Alþingi í júní.

Framlenging sértæks húsnæðisstuðnings

Sértækur húsnæðisstuðningur fyrir Grindvíkinga verður framlengdur til áramóta. Úrræðinu var komið á fót með samþykkt Alþingis í desember sl. en markmiðið er að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði utan bæjarins. Að óbreyttu hefði stuðningurinn runnið út í lok ágúst.

Gert er ráð fyrir að frumvarp um framlengingu sértæks húsnæðisstuðnings verði lagt fram á Alþingi í júní.

Tillögurnar sem snúa að fyrirtækjum byggja á vinnu starfshóps um atvinnulíf í Grindavík sem forsætisráðherra skipaði í febrúar sl. Þar áttu sæti fulltrúar fjögurra ráðuneyta en hópurinn fundaði með fulltrúum fyrirtækja í Grindavík og átti náið samstarf við atvinnuteymi Grindavíkurbæjar.

Starfshópurinn fékk Deloitte til að vinna skýrslu þar sem innviðir í Grindavík voru kortlagðir og dregnar upp mismunandi sviðsmyndir um uppbyggingu atvinnulífs í bænum. Í skýrslunni er einnig að finna hagfræðilega greinargerð sem tekur bæði á hlutlægum og huglægum þjóðhagslegum kostnaði hagkerfisins við misjafnar sviðsmyndir.

Gera má ráð fyrir að kostnaður ríkisins af þeim aðgerðum sem þegar hefur verið ráðist í og eru áformaður sé á bilinu 70-80 milljarðar króna.

  • Frekari stuðningsaðgerðir fyrir Grindavík kynntar - mynd úr myndasafni númer 1
  • Frekari stuðningsaðgerðir fyrir Grindavík kynntar - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum